Ferðaþjónusta í Grundarfirði
Náttúran, mannlífið og sagan laða marga ferðamenn erlenda sem innlenda til Grundarfjarðar. Fyrir þá sem lifa við ys og þys stórborgar er ró og fegurð náttúrunnar forréttinndi.
Fólk sem kynnist náttúru Grundarfjarðar og blandar sér í samfélag staðarins fagnar þeirri algjöru hvíld sem býðst á þessum friðsæla stað. Að geta á örskömmum tíma orðið sem einn íbúa bæjarins er kostur sem fólk frá fáskiptu borgarsamfélagi kann að meta og margir nýta sér.
En ró og friður er ekki það eina sem Grundarfjörður hefur upp á að bjóða. Hér hefur ferðaþjónusta verið að eflast á undanförnum árum og því hefur þjónusta styrkst og hefðbundnum afþreyingarmöguleikum fjölgað.
Úrval gönguleiða, golfvöllur, skotsvæði, veiði, fuglaskoðun, hestamennska, siglingar og margt fleira.
Í Grundarfirði og í nágrenninu eru þrjú veitingahús, hótel, farfuglaheimili, þrjú gistiheimili, þrjú tjaldsvæði, sumarhús, sundlaug og síðast en ekki síst Sögumiðstöðin sem er í senn safn, ljósmyndasetur, kaffihús og upplýsingamiðstöð.
|